Umferð í Hvalfjarðargöngum dróst saman um ríflega 17% í nýliðnum janúar miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta er mesti samdráttur í einum mánuði sem mælst hefur eftir efnahagshrunið.
Öryggiskerfi Hvalfjarðarganga virkaði nákvæmlega eins og til var ætlast, og reyndar gott betur en það, þegar rafmagn fór af á Vesturlandi í óveðrinu í gærkvöld. Rafmagnslaust var í göngunum í um þrjár og hálfa klukkustund.
Umferð í Hvalfjarðargöngum var rúmlega 4% minni á árinu 2011 en 2010. Ökutækjum, sem um göngin fóru 2011, fækkaði þannig um liðlega 83.000 frá fyrra ári.