Spölur meðal fyrirmyndarfyrirtækja 2012
Könnunin var sem fyrr framkvæmd á þann veg að félagsmenn VR fengu spurningalista til að svara og gefa vinnustaðnum sínum einkunn fyrir átta þætti innra starfsumhverfis, svo sem starfsanda, launakjör, ímynd fyrirtækis, ánægju og stolt, trúverðugleika stjórnenda og vinnuskilyrði.
Meðaleinkunn allra svara ræður því hvar fyrirtækin lenda á niðurstöðulistanum. Þau tuttugu efstu í hverjum flokki fengu sæmdarheitið fyrirtæki ársins 2012 og Spölur varð sem sagt í fimmta sæti í sínum flokki.
Í VR-könnunni 2011 varð Spölur í 17. sæti, í 1. sæti 2010 og í 16. sæti 2009. Spölur hefur þannig verið í flokki fyrirmyndarfyrirtækja fjögur ár í röð og getur tekið til sín eftirfarandi umsögn VR þegar félagið kynnti niðurstöðuna í ár:
„VR telur ástæðu til að vekja sérstaka athygli á frammistöðu þessara fyrirtækja sem mörg hver eru ofarlega á lista á hverju ári, hvort sem árar vel eða illa í þjóðfélaginu.“






