Verklok langt á undan áætlun - met slegin
Framkvæmdir við Hvalfjarðargöng gengu svo fljótt og vel að líkja mátti á stundum við vel útfærða lygasögu. Þar hjálpaðist margt að: til dæmis þétt berg sem lítið þurfti að styrkja á stórum köflum leiðarinnar, góðar undirbúningsrannsóknir varðandi jarðlögin undir Hvalfirði, góður undirbúningur verksins að öðru leyti og síðast en ekki síst hörkugott lið sem vann að verkinu - menn sem komu í Hvalfjörð með þekkingu og reynslu úr gangagerð hérlendis og erlendis.
- Bormenn Fossvirkis unnu á vöktum við að sprengja göngin beggja vegna og mættust lokst undir Hvalfirði 3. október 1997. Halldór Blöndal, þáverandi samgönguráðherra, sprengdi burt síðasta haftið 15-16 mánuðum áður en upphaflega var áætlað að endar mættust!
- Mest var sprengt í einni viku í apríl 1997 (15. viku). Þá lengdust göngin um alls 125 metra.
- Mest var sprengt í einum mánuði í apríl 1997. Þá lengdust göngin um 512 metra. Íslandsmetið sem þá féll var sett í Hvalfjarðargöngum í nóvember 1996. Þá lengdust göngin um 440 metra á einum mánuði.


