Spalarskrifstofan lokuð 27. maí!
Starfsmenn Spalar á Akranesi eru að pakka saman og flytja sig um set í bænum. Vegna flutninganna verður skrifstofa félagsins að Mánabraut 20 lokuð á mánudaginn kemur, 27. maí. Að morgni þriðjudags 28. maí verður skrifstofa Spalar opnuð á nýjum stað, að Kirkjubraut 28!



Spölur sem á og rekur Hvalfjarðargöng hefur frá 2007 varið alls um 300 milljónum króna til ýmissa aðgerða í þágu öryggis vegfarenda og ganganna sjálfra, þar af 40 milljónum króna á árinu 2012. Þetta kom fram í skýrslu stjórnar á aðalfundi Spalar fyrr í þessari viku.
Meðalveggjald í Hvalfjarðargöngum 2012 var 574 krónur. Veggjald fyrir staka ferð í upphaflegri gjaldskrá sumarið 1998, þúsundkallinn góði, er enn þann dag í dag þúsundkall í krónum talið en ætti að vera tvöþúsundkall ef gjaldið hefði hækkað í samræmi við verðlag í landinu!