Frí um jól og áramót
Unnið er stöðugt á þrískiptum vöktum við Hvalfjarðargöng, en þegar hátíð gengur í garð fá bormenn verðskuldað frí. Jólafríið hefst 20. desember og stendur til 2. janúar. Mannlaust verður þó ekki á svæðinu, því staðin verður gæslu- og öryggisvakt í vinnuhléi.