Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1996 Lokið við 30% af göngunum

Lokið við 30% af göngunum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Hvalfjarðargöng lengdust um 107 metra í síðustu viku (frá mánudegi í 47. viku til sl. mánudags), sem telst tvímælalaust vera rífandi gangur. Vikuna þar á undan lengdust göngin um 112 metra og það er skráð á spjöld sögunnar sem Íslandsmet. Göngin eru núna alls 1.679 metrar; 893 metrar að sunnanverðu og 786 metrar að norðan. Með öðrum orðum: bormennirnir hafa lokið við 30% af göngunum nú þegar (heildarlengdin er 5.650 metrar)