Stjórn Spalar ehf. mun fljótlega á nýju ári ganga til samninga um kaup á raforku fyrir Hvalfjarðargöng. Fyrir liggur og að skipuleggja innheimtukerfi fyrir vegtolla. Gjaldskýli verður við norðurenda ganganna. (Því má skjóta hér inn að vegtollarnir hafa ekki verið ákveðnir ennþá, en snemma á árinu 1996 var gert ráð fyrir að þeir yrðu allt að 800 krónum fyrir venjulegan heimilisbíl og allt að 2.700 krónum fyrir flutningabíl).
Það kom einnig fram í máli Gísla Gíslasonar, formanns stjórnar Spalar ehf., á aðalfundi félagsins 11. desember sl., að samband hefði verið haft við Almannavarnir ríkisins um gerð viðbúnaðaráætlunar í göngunum. Því þrátt fyrir ítarlegar úttektir um öryggismál og ýmsa áhættuþætti væri afar mikilvægt að öryggisþátturinn yrði sem sýnilegastur og ljós sú stefna Spalar að setja öryggismál í öndvegi.
Gísli fór lofsamlegum orðum um verktakann í göngunum og sagði augljóst að hjá Fossvirki hf., væru _í öllum stöðum mjög hæfir og reynslumiklir fagmenn sem hefðu slegið hvert metið á fætur öðru í framkvæmdunum.



