Fjárfestar í heimsókn
Forráðamenn Spalar ehf., sem byggir og rekur Hvalfjarðargöng, buðu fjölda fulltrúa fjármálastofnana í skoðunarferð inn í göngin föstudaginn 8. nóvember. Þarna voru meðal annars margir áhrifamenn í lífeyrissjóðum, en einmitt íslenskir lífeyrissjóðir og bandarískt líftryggingafyrirtæki kaupa skuldabréf fyrir samtals 4,4 milljarða króna eftir að göngin verða tekin í notkun og fjármagna verkið til langs tíma. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi og stjórnarformaður Spalar ehf., hafði orð fyrir gestgjöfum en og sérfræðingar Spalar (Björn Harðarson) og verktakans, Fossvirkis, (Jóhann Kröyer og Loftur Árnason) greindu frá framkvæmdum í máli og myndum í matsal starfsfólks áður en lagt var í'ann. Hópurinn rölti síðan inn í botn ganganna að sunnanverðu, um sjö hundruð metra leið (sjá myndir). Þetta var afar fróðlegt ferðalag og margir höfðu á orði að göngin væru ótrúlega þurr og slétt - eins og vonandi sést glöggt á myndunum.