Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1996 Hitaveita í göngunum?

Hitaveita í göngunum?

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Þriggja milljóna ára gamlar og úrkulnaðar eldstöðvar eru í hlutverki hitaveitu sem sér um að halda notalegum yl á bormönnunum undir Hvalfirði. Vatn sem seitlar úr bergina á gangaleiðinni er um 12 gráðu heitt (Celsíus), en hefur komist upp í 19 gráður! Fram kom í máli Björns Harðarsonar, jarðfræðings hjá Speli, á fundi með fjárfestum 8. nóvember, að eldstöðvarnar hafi í milljónir ára "soðið" bergið á þessu svæði og gert það þétt. Þess vegna sé talið að grunnvatnsleki í göngunum verði tiltölulega lítill. Alltaf leki eitthvað vatn inn í öll göng, en hverfandi líkur séu á að hitta þarna á opnar vatnsæðar líkt og gerðist í Vestfjarðagöngum. Bæði Björn og Jóhann Kröyer, fulltrúi Fossvirkis, sögðu að gangur verksins væri samkvæmt áætlun og rúmlega það. Ekkert hafi komið bormönnum að óvörum enn sem komið væri.