Linnulaus gestagangur
Áhugi fyrir framkvæmdum í Hvalfirði er svo mikill að verktakinn hefur orðið að takmarka gestagang til að hafa vinnufrið. Tveir hópar góðra gesta komu á vettvang í síðustu viku (46. viku). Í öðrum þeirra voru verktakar, vegagerðarmenn og verktakar frá Noregi, sem starfa við að búa til nýjan alþjóðaflugvöll í Gardermoen norður af Osló. Þeir fengu Íslandsferðina í bónus fyrir góða frammistöðu við þetta risavaxna samgönguverkefni Norðmanna.