Bæklingur á íslensku og ensku
Spölur ehf., Fossvirki sf. og Vegagerðin hafa gefið út vandaðan bækling til að upplýsa almenning um helstu þætti framkvæmdanna í Hvalfirði, hvernig staðið var að undirbúningi verksins og hvers konar samgöngumannvirki göngin verða þegar þau verða tilbúin þegar nær dregur aldamótum. Bæklingurinn heitir "Þjóðbraut undir Hvalfjörð" og er prýddur fjölda mynda og skýringateikninga. Hann kom út í september síðastliðnum og var gefinn út í enskri þýðingu núna í nóvember. Almannatengslafyrirtækið Athygli ehf. hafði umsjón með útgáfunni og auglýsingastofan Rita annaðist hönnun og umbrot.