Íslandsmet í jarðgangagerð!
Bormenn í Hvalfirði settu Íslandsmet í jarðgangagerð núna í nóvember þegar þeir lengdu Hvalfjarðargöng um samtals 112 metra á einni viku: 57 metra að norðan og 55 metra að sunnan. Þetta gerðist í 46. viku. Heildarlengd ganganna var þar með orðin 1.572 metrar föstudagskvöldið 15. nóvember. Það er með öðrum orðum rífandi gangur í verkinu og nú er unnið beggja vegna fjarðarins alla daga vikunnar. Bætt hefur verið við þriðju vaktinni í göngunum. Tveir vakthópar vinna en einn er í fríi. Þannig skipast vaktirnar á um að halda verkinu stöðugt gangandi.