Kjarasamningar
Fulltrúar atvinnurekenda og þriggja verkalýðsfélaga innan Verkamannasambands Íslands undirrituðu nýjan kjarasamning 18. júlí 1996 vegna vinnu í Hvalfjarðargöngum. Þetta er fyrsti sérkjarasamningurinn af þessu tagi hérlendis og gildir til aldamóta. Haft var eftir Snæ Karlssyni, forystumanni samninganefndar verkalýðsfélaganna, í fjölmiðlum að samningurinn fæli í sér 20 - 30% hærri laun miðað við almenna kjarasamninga um hliðstæð störf. Það þýðir ekki að kaup verkamanna hafi hækkað um 20 - 30% með nýja samningnum, heldur í raun um 3 - 6%, því greitt var kaup umfram taxta áður en samið var - bæði í Hvalfjarðar- og Vestfjarðagöngum. Samkomulagið tekur til Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, Verkakvennafélagsins Framsóknar og Verkalýðs- og sjómannafélags Akraness.