Sprengt með viðhöfn
Byrjað var að sprengja í norðurmunna Hvalfjarðarganga 30. maí 1996 og að sunnanverðu var fyrst sprenging í munna 18. júní 1996. Unnið er frá báðum endum og áætlað að gangavíkingarnir mætist undir Hvalfirði um mitt ár 1998. Göngin lengjast um 4,5 metra í hverri sprengingu og um 25-35 metra hvoru megin á viku