Jarðgangagerðin undir Hvalfirði gengur svo vel um þessar mundir að verktakinn, Fossvirki, telur raunhæft að lokið verði við að sprengja göngin á árinu 1997 en ekki 1998, eins og ráð var fyrir gert í upphaflegum áætlunum. Ef gangur verksins verður hér eftir sem hingað til má gera ráð fyrir að bormennirnir komist alla leið undir fjörðinn fjórum mánuðum á undan áætlun. En verkfræðingarnir Loftur Árnason hjá Ístaki, og Hermann Sigurðsson, staðarstjóri Fossvirkis í Hvalfirði, lögðu þó ríka áherslu á það á aðalfundi Spalar 11. desember að einungis ríflega þriðjungur verksins væri að baki. Margt gæti gerst á kaflanum sem eftir væri. Einkum tveir ástæður eru fyrir að svo vel hefur gengið sem raun ber vitni: bergið er betra báðum megin en búist hafði verið við í varfærnustu spám. Minna vatn lekur inn í göngin en gera hefði mátt ráð fyrir og þess vegna er minni vinna við þéttingu bergs en ella. Hin ástæða þess að vel gengur er sú að Fossvirki bætti við þriðju vaktinni í göngunum til að flýta verkinu.
Verktakinn hefur nú lagt til hliðar upphaflegri verkáætlun og styðst við nýja áætlun, sem hann er þegar kominn eilítið fram úr. Stefnt er að því að hætta sprengingum norðanmegin þegar kemur fram á næsta ár og hefja frágangsvinnu í göngunum þá þegar. Það kemur þannig í hlut þeirra sem sprengja sunnan megin að opna á milli endanna, þegar þar að kemur.
Gangamenn að sunnanverðu eru komnir vel undir sjó á leiðinni. Norðanmenn eru hins vegar ekki komnir undir sjó, en að því dregur brátt. Alls 78 starfsmenn eru við jarðgangagerðina í Hvalfirði á vegum Fossvirkis, þar af tíu erlendir sérfræðingar.



