Samið við iðnaðarmenn
Vinnuveitendasamband Íslands, Rafiðnaðarsambandið og Samiðn undirrituðu nýjan kjarasamning vegna vinnu við Hvalfjarðargöng. Þar með hafa öll stéttarfélög gangagerðarmanna samið fyrir hönd síns fólks. Morgunblaðið hefur eftir Guðmundi Gunnarssyni, formanni Rafiðnaðarsambandsins, að nú hafi tekist að fá VSÍ til að skrifa undir samning þar sem taxtar séu færðir að greiddu kaupi. Samningurinn feli að auki í sér umtalsverða kauphækkun fyrir iðnaðarmenn sem starfi við göngin.