Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1996 1.900 metrum lokið

1.900 metrum lokið

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Fossvirkismenn bættu alls 112 metrum við Hvalfjarðargöngin í síðustu viku . Í 49. viku bættust við 57 metrar að sunnan og 55 metrar að norðan, alls 112 metrar.Staðan að morgni mánudags 9. desember var því sú að lokið var nákvæmlega 1.901 metra af alls 5.650 metrum undir fjörðinn. Göngin í suðurenda eru orðin 1.010 metra löng, en göng í norðurenda eru 891 metri. Þannig eru að baki um 35% leiðarinnar undir fjörðinn. Eftir að þriðju vaktinni var bætt við í Hvalfirði var gert ráð fyrir að göngin myndu lengjast að meðaltali um 80 metra á viku. Gangur verksins hefur farið nokkuð fram úr þeirri áætlun síðustu vikur, enda hefur lítið þurft að þétta bergið í hverjum áfanga sem sprengdur er.