Stofnkostnaðurinn kominn í nær 1.800 milljónir króna
Stofnkostnaður við Hvalfjarðargöng var orðinn 1.760 milljónir króna 1. október sl., samkvæmt efnahagsreikningi Spalar hf., sem lagður var fram á aðalfundi félagsins miðvikudaginn 11. desember 1996. Heildarkostnaður við undirbúningsrannsóknir, byggingu vegganga og fjármagnskostnað á byggingartíma er um 4,6 milljarðar króna á verðlagi í febrúar 1996. Fé til framkvæmdanna kemur ekki úr ríkissjóði eins og venja er um önnur samgöngumannvirki. Spölur fær langmestan hluta framkvæmdafjárins að láni erlendis en það, sem upp á vantar, kemur frá innlendum lánastofnunum og hluthöfum, auk þess sem ríkið lánaði fyrir kostnaði við rannsóknir og undirbúning.