Bormenn Fossvirkis í Hvalfirði slá ekki slöku við og bættu eigið Íslandsmet í gangagerð í síðustu viku (viku nr. 15). Þá bættust við 125 metrar, þar af 70 að sunnan og 55 að norðan. Alls var því búið að bora og sprengja að morgni mánudags 14. apríl 3.456 metra, eða liðlega 63% af fyrirhuguðum göngum. Eftir eru þá 2.028 metrar og óhætt að segja að nú sígi á seinni hlutann.
Það þótti áður bærilegur gangur í fyrri jarðgöngum hér á landi að grafa og sprengja 80 til 90 metra á viku. Þetta met hafa bormenn í Hvalfirði slegið oft síðustu mánuði. Í 47. viku 1996 bættu þeir til dæmis við 112 metrum. Í 9.viku 1997 náðu þeir 122 metrum og nú í 15. viku 125 metrum. Þegar svo vel gengur sem raun ber vitni er bergið fast í sér og gott og lítið sem ekkert þarf að þétta.



