Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1997 Lokið við að sprengja 70% ganganna

Lokið við að sprengja 70% ganganna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Nú sígur heldur betur á seinni hlutann í jarðgangagerðinni undir Hvalfirði. Mánudaginn 12. maí var heildarlengd ganganna orðin 3.867 metrar, rétt 70% af heildarlengdinni!. Þar af eru komnir 2.178 metrar að sunnan og 1.689 metrar að norðan. Nokkuð lak úr berginu sunnan megin í síðustu viku og þurfti að þétta fjórum sinnum eftir sprengingar. Núna eru bormenn komnir í gegnum þennan kafla og fást núna við þétt berg. Tíu starfsmönnum hefur verið bætt við á vinnusvæði Fossvirkis í Hvalfirði og þeim er ætlað að undirbúa vinnu við 218 metra langan forskála sem steyptur verður í sumar við gangamunnann að sunnan.