Göng undir Hvalfjörð eru einn þáttur í því að gera Grundartangasvæðið álitlegt fyrir frekari uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Þetta kemur skýrt fram í Svæðisskipulagi sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar 1992-2012, sem samþykkt var árið 1994. Þar er meðal annars að finna sérstakan kafla sem heitir Áhrif Hvalfjarðarganga. Enn skýrar kemur þetta fram á bls. 55 í greiðargóðum og læsilegum bæklingingi í stóru broti um svæðisskipulagið. Þar er kafli sem heitir Stóriðja, orkufrekur iðnaður, iðnaðarsvæðið á Grundartanga. Því hefur meðal annars verið haldið fram undanfarna daga að aldrei hafi verið talað um frekari uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Grundartanga. Í Svæðisskipulaginu frá 1994 stendur hins vegar orðrétt:
" Iðnaðarsvæðið á Grundartanga býður að mörgu leyti upp á ákjósanleg skilyrði fyrir frekari uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Flutningsgeta núverandi raforkukerfis til svæðisins er t.d. 300 MW, en Járnblendiverksmiðjan nýtir aðeins um 70 MW. Þá getur núverandi Grundartangaveita flutt mun meira vatnsmagn en nú er nýtt. Hafnaraðstaða er fyrir hendi á Grundartanga, sem þjónað getur frekari iðnaðarstarfsemi en þar er nú og stækkun hafnarinnar er mjög auðveld. Samgönguæðar á landi að og frá svæðinu eru greiðfærar, þannig að fólk af öllu svæðinu getur auðveldlega notfært sér atvinnutilboð á Grundartanga. Nýr vegur frá Brennimel að Grundartanga myndi gera aðgengið að iðnaðarsvæðinu enn betra. Veggöng undir Hvalfjörð myndu og tengja þetta svæði enn betur höfuðborgarsvæðinu og trúlega gera það að fýsilegasta kostinum fyrir stóriðju og orkufrekan iðnað sem völ er á hérlendis. Þegar tekin er afstaða til stóriðju og orkufreks iðnaðar verður að sjálfsögðu að gæta þess, að starfsemin valdi ekki spjöllum á náttúru svæðisins og að framkvæmdir séu felldar vel að landi og umhverfi. Einnig þarf að líta til þess hvaða félagsleg áhrif starfsemin leiðir af sér. Sennilegt er að frekar ætti að sækjast eftir minni fyrirtækjum inn á svæðið, þar sem starfsmannafjöldinn væri á bilinu 10-50 manns. Hættan á félagslegri röskun er þá minni, ef fyrirtæki hættir starfsemi og fjölbreytni í starfsemi hugsanlega meiri"
Á þessu er hnykkt enn frekar í kaflanum sem heitir Meginniðurstöður, stefnumörkun og markmið. Þar er talað um að fjölga þurfi störfum á svæðinu sunnan Skarðsheiðar um 650-700 ársverk á næstu 20 árum. Leggja þurfi áherslu á aukna fjölbreytni og vinna enn betur úr þeim möguleikum sem eru til vaxtar í flestum þeim atvinnugreinum sem nú eru stundaðar þarna. "Í þessu sambandi má t.d. nefna Grundartangasvæðið, sem um leið og Hvalfjarðargöng koma til sögunnar verður með best settu iðnaðarsvæðum landsins." Þannig skuli "stefnt að öflugri kynningu á Grundartangasvæðinu og kostum þess sem iðnaðarsvæðis."



