Bormenn verða að líkindum hálfnaðir á leiðinni undir Hvalfjörð fyrir febrúarlok. Vegalengdin er hálfnuð við 2.742 metra og í gær (mánudag 10. febrúar) var lokið við að sprengja 2.562 metra. Þá vantaði með öðrum orðum aðeins 180 metra upp á að áfanginn væri hálfnaður. Til samanburðar má geta þess að sprengdir voru 150 metrar frá mánaðarmótum janúar/febrúar til 10. febrúar. Heildarlengd Hvalfjarðarganga verður 5.484 metrar, sem er umtalsvert styttra en talað var um í upphafi verks.
Sjá frétt 5. febrúar 1997.
- Þann 10. febrúar voru göngin orðin 1.397 metrar að sunnanverðu og 1.165 metrar að norðan.
- Göngin voru komin 87 metra undir yfirborð sjávar að sunnan en 94 metra að norðan.
- Það litla vatn sem inn í göngin seytlar volgnar þegar neðar dregur. Nú er hitinn 22-25°C að sunnan en 17-19°C að norðan.