Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1997 Nesey ehf. bauð lægst í vegtengingu

Nesey ehf. bauð lægst í vegtengingu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Verktakafyrirtækið Nesey í Gnúpverjahreppi átti lægsta tilboð í vegtengingu Hvalfjarðarganga sunnan megin fjarðar, um 75% af kostnaðaráætlun verkkaupans. Nesey bauð tæpar 47 milljónir króna í verkið en Vegagerðin áætlaði að það kostaði tæplega 62,8 milljónir króna.

Alls bárust 12 tilboð í verkið, mörg þeirra voru nokkuð nálægt kostnaðaráætlun. JVJ ehf. í Hafnarfirði áttu næstlægsta tilboðið, tæplega 49,9 milljónir króna. Hæstu tilboð áttu Kambur, vinnuvélaþjónusta í Kópavogi (tæplega 84 milljónir króna) og S E E S hf. í Njarðvík (rúmlega 82 milljónir króna).