Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1997 Hiti í bergi allt að 50 gráðum

Hiti í bergi allt að 50 gráðum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Hitinn í berginu sunnan megin í göngunum mælist allt að 50 gráður, en að norðan um 17 til 18 gráður á celsíus. Bergið kólnar fljótt eftir að sprengt er og hreinsað út úr göngunum í hverjum áfanga verksins, eða um 15 til 20 gráður að sunnan á einum sólarhring. Lofthitinn á vinnustað sunnan megin er þægilegur: 15 til 20 gráður. Tæpast er hægt að segja að vart hafi orðið við vatnsleka í göngunum vikum saman, enda er bergið mjög þétt.