Bormenn Fossvirkis bættu 512 metrum við Hvalfjarðargöng í aprílmánuði, sem er stærsti áfangi á einum mánuði frá því framkvæmdir hófust þarna snemma sumars 1996. Í nóvember 1996 bættust 440 metrar við göngin en nú er það met slegið og hálfs kílómeters múrinn rofinn. Að öðru leyti er gestum á heimasíðunni vísað á töflu um framvindu verksins undir efnisþættinum "Framkvæmdir". Þar kemur fram að 1. maí síðastliðinn var lokið við 3.736 metra af alls 5.484 metrum.
Með svipuðu framhaldi er ekki óvarlegt að spá því að bormenn "slái í gegn" undir Hvalfirði í september.
Núna í 18. viku ársins bættust við 103 metrar: 39 að norðan og 64 að sunnan. Bormenn að norðanverðu voru í fríi á baráttudegi verkalýðsins 1. maí, en unnið var á sama tíma að sunnan.



