Heildarlengd Hvalfjarðarganga verður 5.484 metrar, samkvæmt nýjustu upplýsingum sem fyrir liggja. Hingað til hefur verið talað um að göngin yrðu alls 5.650 metrar og í upphafi verks áttu þau að vera enn lengri. Skýringar á styttingunni eru tvær: Annars vegar var dýpra niður á gangamunna í upphafi verks en gert hafði verið ráð fyrir. Vegskálar við enda ganganna lengjast við þetta en göngin sjálf styttust að sama skapi. Hins vegar hafa hönnuðir breytt beygjum í göngunum sjálfum eftir að verkið hófst og þá styttust göngin enn frekar. Samsagt: Nú tölum við um að Hvalfjarðargöng verði 5.484 metrar.
Lítið vatn lekur inn í göngin og svo hefur verið frá því framkvæmdir hófust, enda er bergið er víða afar þétt. Á tímabili var það litla vatn sem inn kom sjóblandað, en núna er það alveg ferskt, 23 gráðu heitt að sunnan og 15-16 gráðu heitt að norðan. Þetta er þannig hlýr og notalegur vinnustaður þó utan munna gnauði veður á þorra.



