Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1997 Lokið við að sprengja 45% af göngunum

Lokið við að sprengja 45% af göngunum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Hvalfjarðargöng voru orðin alls 2.487 metrar að morgni mánudags 3. febrúar, sem er nákvæmlega 45% af leiðinni undir fjörðinn. Að baki voru þá 1.348 metrar að sunnan og 1.139 metrar að norðan. Það styttist með öðrum orðum í að bormenn verði hálfnaðir í einstæðri för sinni á milli stranda í Hvalfirði . Verkið hefur gengið heldur hægar undanfarið en fyrr í vetur. Þannig bættust aðeins 15 metrar við að norðan í síðustu viku janúar og 50 metrar í vikunni þar á undan. Samtímis þurfti til dæmis að þétta berg báðum megin í göngunum í síðustu viku janúar, sem tekur sinn tíma. Núna eru bormenn hins vegar komnir í þéttara berg, einkum sunnan megin. Allt er þetta samt eins og gert hafði verið ráð fyrir. Jarðfræðingar höfðu sagt að bergið yrði þétt sums staðar en lausara annars staðar og það hefur gengið eftir.