Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1997 Staupa-Steinn er verndari Hvalfjarðarganga

Staupa-Steinn er verndari Hvalfjarðarganga

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Eignarhaldsfélagið Spölur, sem á og rekur Hvalfjarðargöng, styrkir Akraneshlaup 1997 á laugardaginn kemur, 7. júní. Spölur ehf. notar tækifærið og kynnir formlega nýjan liðsmann sinn og kynningarfulltrúa, Staupa-Stein að nafni. Þátttakendur hlaupa í bolum með mynd af karlinum glaðbeittum framan á. Þórhildur Jónsdóttir, auglýsingateiknari og eigandi Auglýsingastofu Þórhildar í Reykjavík, teiknaði Staupa-Stein eftir frummynd frá Erlu Stefánsdóttur sjáanda. Saga Staupa-Steins birtist í kynningarbæklingi Akraneshlaupsins sem dreift var í hvert hús á Skaganum um nýliðna helgi og vakti verulega athygli. Þar var líka birtur greinarstúfur um gang sjálfs verksins. Við hæfi er auðvitað að kynna Staupa-Stein líka hér á heimasíðu Hvalfjarðarganga og sömuleiðis það sem skrifað stendur í kynningarbæklingi Akraneshlaups um göngin.

Einbúinn Staupa-Steinn slæst í för með þeim sem taka þátt í Akraneshlaupinu í ár og sýnir sig í fyrsta sinn opinberlega - á bringu og maga hlauparanna! Það á vel við að hann kynni sig til sögunnar á Skaganum, því hvergi á landinu verða áhrif ganga undir Hvalfjörð meiri en einmitt hér. Staupa-Steinn er sérstakur vinur og verndari Hvalfjarðarganga og lætur til sín taka sem slíkur.

Landsmenn skulu ekki halda að þessi geðþekki, síðhærði og skeggjaði karl sé hugarfóstur. Nei, hann er til, fáum þó sýnilegur, og býr á Skeiðhóli í Hvalfirði. Sú hugmynd kviknaði á sínum tíma í almannatengslafyrirtækinu Athygli, sem annast kynningarmál fyrir Spöl ehf., að útbúa táknmynd af einhverju tagi fyrir Hvalfjarðargöng. Á eldhúsborði í Reykjavík varð til bergbúinn Staupa-Steinn, nefndur eftir einu þekktasta náttúrufyrirbærinu við Hvalfjörð. Ákveðið var að hafa samband við Erlu Stefánsdóttur sjáanda til að fá upplýsingar um hvernig slíkir bergbúar ættu helst að líta út. Erla þótti tvímælalaust líklegust til að gefa góð ráð í þeim efnum, enda hefur hún lagt til upplýsingar og teikningar vegna afar merkilegra huliðsheimakorta fyrir Kópavog, Hafnarfjörð og Ísafjörð. Sjáandinn svaraði að bragði að einfaldast væri að teikna bara mynd af karlinum sem byggi í Staupasteini! Hún kvaðst oft hafa staldrað við hjá honum á ferð um Hvalfjörð og lýsti karli sem góðlyndum, gamansömum og sérlega barngóðum. Allra best þætti honum að fá heimsókn fjölskyldufólks að steininum, einkum ef krakkarnir tækju með sér bolta út úr bílnum til að leika með, þegar þeir fullorðnu nytu útilofts og náttúrufegurðar. Karlinn veit ekkert nefnilega skemmtilegra en atast í boltaleikjum með krökkum.

Erla Stefánsdóttir taldi afar sennilegt að einbúinn í Staupasteini myndi taka að sér kynningarstarf fyrir Spöl vegna Hvalfjarðarganga. Hún gerði sér meira að segja ferð upp í Hvalfjörð laugardaginn 29. mars til að kanna hvernig þetta legðist í karlinn. Skemmst frá að segja að Staupa-Steinn var bæði upp með sér og glaður. Og nú tekur nágranni vor í Hvalfirði þátt í Akraneshlaupinu 1997 til að minna landsmenn alla á að eftir ótrúlega stuttan tíma verður merkilegasta samgöngumannvirki Íslandssögunnar tilbúið til notkunar, rétt við bæjardyr Skagamanna.

Skeiðhóll er undir miðju Hvammsfjalli í Hvalfirði. Milli hólsins og fjallsins er grunnt skarð þar sem ekið var um uns þjóðvegurinn var færður niður fyrir hólinn, nær sjónum. Sunnan í Skeiðhól stendur afar sérstæður klettur, líkastur glasi á mjóum stöpli. Á honum eru þekkt að minnsta kosti fjögur nöfn: Prestur, Steðji, Karlinn í Skeiðhól og Staupasteinn. Flestir kannast trúlega við klettinn sem Staupastein en á vegvísi við þjóðveginn, nálægt Hvammsvík, er hann nefndur Steðji. Kletturinn og næsta nágrenni er friðlýst sem náttúruvætti. Einbúinn okkar býr í klettinum sjálfum og í brekkunni þar hjá. Erla Stefánsdóttir sjáandi veit einungis um 8 einbúa sömu ættar á Íslandi. Auk okkar manns á Skeiðhóli, er slíkur einbúi við Brynjudalsá í Hvalfirði, tveir eru í Kópavogi og einn nálægt þjóðveginum við Blönduós, svo nokkrir séu nefndir.