Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1997 Jákvætt viðhorf Akraborgarfarþega

Jákvætt viðhorf Akraborgarfarþega

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Afstaða manna til Hvalfjarðarganga er afar jákvæð, ef marka má niðurstöður könnunar meðal farþega um borð í Akraborginni í nokkrum ferðum í apríl sl. Fram kom til dæmis að 40% svarenda frá Akranesi töldu að þeir myndu fara oftar til og frá höfuðborgarsvæðinu eftir að göngin verða tekin í notkun en nú gerist. Af öllum sem afstöðu tók í könnuninni töldu einungis tæplega 5% svarenda að þeir myndu ferðast sjaldnar til og frá Reykjavík eftir að göngin verða tekin í gagnið.

Í forvitnilegri skýrslu um stefnumótun í verslun, þjónustu, ferðaþjónustu og afþreyingu á Akranesi í náinni framtíð, frá í maí 1997, eru dregnir fram hugsanlegir kostir og gallar Hvalfjarðarganga þegar metin eru áhrif þeirra á samfélagið á Akranesi. Þar segir m.a.:

Áhrif Hvalfjarðarganga geta orðið bæði jákvæð og neikvæð. Jákvæð áhrif gætu falist í bættri samkeppnisstöðu fyrirtækja, auknum ferðamannastraumi og uppbyggingu í iðnaði. Uppbygging þessara atvinnugreina getur síðan leitt til fólksfjölgunar og aukinna umsvifa í verslunar- og þjónustugreinum. Neikvæð áhrif kæmu fram í hinu gagnstæða: verslun og þjónusta færðist nær höfuðborgarsvæðinu, samkeppni við fyrirtæki þar riði fyrirtækjum á Akranesi að fullu og ferðaþjónusta drægist saman. Á næstu 16-20 árum verður innheimtur vegtollur við göngin og getur slíkt vissulega haft áhrif á þróunina. Ef vegtollurinn er hár er líklegra að fólk ferðist síður um göngin til að sækja verslun og þjónustu. Mjög hár vegtollur myndi enn og aftur geta haft neikvæ áhrif í hina áttina, þ.e. að draga úr ferðum gesta frá höfuðborgarsvæði og undir fjörð. Að 20 árum liðnum, þegar gjaldtaka fellur niður, gætu jákvæð áhrif eflst aftur.