60% af leiðinni undir fjörðinn að baki!
Bormenn Fossvirkis höfðu lokið við að sprengja og grafa alls 3.244 metra undir Hvalfirði núna um mánaðarmótin, eða tæplega 60% af heildarlengd ganganna. Lokið var við 1.822 metra að sunnanverðu og 1.402 metra að norðan. Fossvirkismenn í göngunum fengu frí um páskana líkt og sneru aftur til starfa að morgni þriðjudags 1. apríl. Verkið gekk vel dagana og vikurnar fyrir páska, eins og tölurnar um framgang þess sýna glöggt.