Fulltrúar Almannavarna væntanlegir
Fulltrúar Almannavarna ríkisins og fleiri gestir eru væntanlegir upp í Hvalfjarð fyrir lok janúar til að skoða göngin og kynna sér allar aðstæður á vettvangi. Ráðamenn Spalar ehf. höfðu fyrr í vetur samband við Almannavarnir vegna sérstakrar viðbúnaðar- eða neyðaráætlunar fyrir Hvalfjarðargöng. Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, sagði á aðalfundi félagsins í desember sl., að þrátt fyrir ítarlegar úttekir um öryggismál og ýmsa áhættuþætti væri afar mikilvægt að öryggisþáttur ganganna yrði sem sýnilegastur og ljós sú stefna Spalar að setja öryggismálin í öndvegi.