Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1997 Rífandi gangur á nýju ári

Rífandi gangur á nýju ári

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Vinna í Hvalfjarðargöngum hefur gengið ágætlega á nýju ári og göngin lengjast um nálægt 100 metrum að jafnaði í viku hverri. Bergið er þétt og gott frá náttúrunnar hendi og tímafrekar þéttingar tefja því ekki verkið. Mánudaginn 20. janúar voru göngin orðin 1.273 metrar að sunnan og 1.064 metrar að norðan, alls 2.337 metrar. Þar með er lokið um 41,4% af heildarlengd ganganna. Bormenn eru komnir 86 metra undir sjó að norðan og 82 metra undir sjó að sunnan. Það litla vatn sem seytlar úr berginu í göngunum er um 19 gráðu heitt og því er hlýtt og notalegt á þessum vinnustað undir Hvalfirði! Jarðfræðingar höfðu spáð því að vart yrði við volgt vatn á gangaleiðinni og búast við enn heitara vatni þegar neðar dregur.