Bormenn sunnan megin í göngunum komu að sprungu með heitu vatni í lok síðustu viku og voru í þrjá daga að þétta bergið áður en hægt var að halda sprengingum áfram. Sprungan var aðeins um tveir sentimetrar á breidd og úr henni komu 10 til 15 sekúndulítrar af um 40 stiga heitu vatni. Fossvirkismenn urðu varir við þennan leka þegar boraðar voru könnunarholur fyrir næsta áfanga til sprengingar í göngunum. Vatnið var ekki jafn heitt og vart hefur orðið sums staðar annars staðar í göngunum en nokkru saltara. Þetta var grunnvatn úr berginu sjálfu án tengsla við sjóinn ofan við. Atvikið var hvorki óvænt né dramatískt á nokkurn hátt, enda við því búist frá upphafi að slíkar sprungur yrðu á vegi bormanna undir firðinum.
Mánudaginn 19. maí var eftir að sprengja 1.526 af alls 5.484 metrum í Hvalfjarðargöngum. Í síðustu viku miðaði hægar að sunnanverðu en oftast áður, vegna lekans sem greint er frá hér að framan. Norðanmenn bættu við 50 metrum hjá sér en sunnanmenn 41 metra.
Hafin er vinna við vegskála við syðri munna ganganna. Undirbúningur verksins hófst fyrir hálfum mánuði og byrjað er að steypa undirstöður. Byggingarframkvæmdir við vegskálana standa yfir í allt sumar.



