Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1998 Samningur við Landssímann um fjarskiptabúnað

Samningur við Landssímann um fjarskiptabúnað

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
pölur ehf. og Landssími Íslands hf. hafa gert samning um fjarskiptabúnað í eigu Landssímans í Hvalfjarðargöngum. Samningurinn gildir þar til Spölur hætti rekstri ganganna og afhendir þau ríkinu, tveimur áratugum eftir að þau verða tekin í notkun.

Landssíminn fær heimild til að setja upp búnað fyrir NMT- og GSM-farsímaþjónustu í göngunum, auk boðkerfis og hugsanlegar framtíðarþjónustu. Landssíminn greiðir stofnkostnað og uppsetningu fjarskiptabúnaðarins.

Gert er ráð fyrir loftnetum í gangaloftinu með 500 til 1.000 metra millibili, ásamt endurvörpum í tækjaskápum við gangaveggi. Lagnir verða um rör sem Landssíminn á. Samningurinn veitir Landssímanum ekki einkarétt til að reka fjarskiptaþjónustu í göngunum og fyrirtækið ábyrgist að búnaðurinn trufli ekki aðrar sendingar sem gert er ráð fyrir þar.