Atvinnumálanefnd Akureyrar veitti á dögunum fyrirtækinu Raftákni ehf. verkfræðistofu þar í bæ sérstaka viðurkenningu fyrir góðan árangur í rekstri. Þetta eru sérlega ánægjuleg tíðindi fyrir vini og velunnara Hvalfjarðarganga, því einmitt Raftákn hannar allt sem tengist rafmagni í göngunum og er undirverktaki Fossvirkis. Árni V. Friðriksson, framkvæmdastjóri Raftákns, sagði í samtali við Hvalfjarðarsíðuna að rafhönnun fyrirtækisins tæki t.d. til lýsingar, spennistöðva, loftræstibúnaðar, dælukerfis og lagna. Síðast en ekki síst væri sjálft stjórnkerfi ganganna í þessum stóra verkefna"pakka", þ.e. öflugur og umfangsmikill öryggis- og eftirlitsbúnaður sem notaður verður til að fylgjast með vatnsleka, mengun og umferðinni sjálfri með myndavélum.
Hugsanlegt er að innheimta veggjalds verði hluti af stjórnkerfinu á þann hátt t.d. að vegfarandur geti keypt tiltekinn fjölda ferða um göngin og greitt fyrirfram. Þeir setja strikamerki á framrúðu bílanna og í hvert sinn sem þeir aka undir Hvalfjörð er lesið stafrænt af strikamerkinu og dregið frá "inneigninni" þeirra. Á sama hátt er hægt að lesa af merkinu og innheimta veggjaldið eftir á, til dæmis skuldfæra það á krítarkortareikningi viðkomandi.



