Aldrei hafa fleiri verið við störf í Hvalfjarðargöng en einmitt nú, alls 120 starfsmenn verktakans (Fossvirkis) og ýmissa undirverktaka. Segja má því með sanni að allt sé rauðglóandi í firði sjávarspendýranna um þessar mundir. Nú er hápunktur verksins. Hér er stiklað á stóru um það sem mannskapurinn á vettvangi sýslar við:
- Núna í vikunni verður lokið við að steypa vegsvalir að norðanverðu. Verið er að ryðja jarðefnum yfir vegsvalir að sunnan og undirbúa frágang ofanjarðar þar.
- Allt drenkerfið í sjálfum göngunum er tilbúið með brunnum og öllu tilheyrandi, þ.e. kerfið sem tekur við vatni sem seitlar inn í göngin eftir að þau verða tekin í notkun.
- Víða um göngin er verið að vinna í loftum með þéttidúk annars vegar og frauðplasti og sprautusteypu hins vegar. Þetta er lokafrágangurinn.
- Allar fjórar spennistöðvar í göngunum hafa verið steyptar upp. Vatnsþróin mikla í botni ganganna hefur sömuleiðis verið steypt upp.
- Byrjað er að vinna við dælukerfi.
- Þann 18. mars var byrjað að malbika í suðurhluta ganganna. Malbikslögin eru tvö og það er hið fyrra sem unnið er við núna. Malbikuð og greið leið er nú þegar að norðanverðu.
- Byrjað er að setja upp kapalstiga í loftin til að hengja á margvíslegan búnað: ljóskastara, fjarskiptakapla og fleira.
- Undirverktaki í rafmagnsmálum er nýkominn á svæðið og hefur hafist handa við að draga kapla í lagnir á milli spennistöðva.