Vegfarendur spara sér í flestum tilvikum fjármuni með því að aka undir Hvalfjörð fremur en aka fyrir fjörðinn, samkvæmt niðurstöðu úttektar sem kynnt var á fréttamannafundi Spalar.
Áskrifendur að afsláttarferðum fá sérstakan veglykil til að setja á framrúðuna á bílnum og aka viðstöðulaust í gegnum gjaldhliðið. Hinir stoppa og greiða með reiðufé eða greiðslukorti.
Veggjaldið lægra en kostar að aka fyrir Hvalfjörð
Unnið hefur veið að umfangsmiklum útreikningum fyrir Spöl ehf. á rekstrarkostnaði ökutækja landsmanna, til að fá upplýsingar um hve mikið það kostar í raun að aka fyrir Hvalfjörð. Í útreikningunum er í veigamiklum þáttum stuðst við viðmiðunartölur Félags íslenskra bifreiðaeigenda um bifreiðakostnað.
Niðurstöður útreikninganna staðfesta að er afar hagstætt fyrir vegfarendur að velja göngin þó horft sé á kostnaðarhliðina eina. Við bætist svo að menn eru fljótari í ferðum og njóta mun meira öryggis á leiðinni en á þjóðveginum fyrir Hvalfjörð, ekki síst um vetur. Hvalfjarðargöng stytta leiðina á milli Akraness og Reykjavíkur um 60 km og á milli Borgarness og Reykjavíkur um 42 km.
Aksturstengdur kostnaður við að aka 49 km:
- 787 til 1.671 krónur fyrir fólksbíla og jeppa.
- 2.467 krónur fyrir sendibíla.
- 4.216 til 5.397 krónur fyrir vörubíla.
- 3.272 til 4.038 krónur fyrir fólksflutningabíla (rútur).
Áskrifendur borga minna og aka beint í gegn
Þeir sem fara oft um Hvalfjarðargöng geta sparað fjármuni og flýtt för sinni enn frekar með því að gerast áskrifendur að ferðum og greitt fyrir fram. þeir gera skriflegan samning við Spöl ehf. og fá lítið tæki, veglykil, til að setja á á framrúðuna í bílnum sínu, bak við baksýnisspegilinn. Þetta er norskur tæknibúnaður, sem meðal annars er notaður með góðum árangri í nýlegum neðansjávargöngum á leiðinni milli borganna Stavangurs og Björgvinjar í Noregi.



