Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1998 Styttist í stóra daginn/Gangahátíð

Styttist í stóra daginn/Gangahátíð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Eftir aðeins fimm vikur verða Hvalfjarðargöngin opnuð við hátíðlega athöfn og undirbúningur er á fullum skriði á mörgum vígstöðvum. Hátíðardagskráin er sem næst fullmótuð en of snemmt er að viðra efni hennar. Ljóst er þó að sjálft opnunarathöfnin verður við suðurmunna ganganna laugardaginn 11. júlí klukkan 14:00 og á eftir verður ekið með boðsgesti undir Hvalfjörð til Akraness. Þar verður samkoma í tilefni dagsins. Gera má ráð fyrir að boðsgestir verði um eða yfir 300 talsins, innlendir og erlendir.

Klukkan 16:00 þennan sama dag verður Hvalfjarðargangahlaup og kl. 19:00 verða göngin opnuð fyrir almennri umferð. Sérstök athygli er vakin á að vegfarendur aka ókeypis um göngin fyrstu dagana og því má gera ráð fyrir mikilli umferð.

Akraborgin verður kvödd með virktum um það leyti sem Hvalfjarðargöngin verða tekin í notun. Athöfnin er liður í sérstakri Gangahátíð Skagamanna sem efnt verður til í heila viku. Dagskrá hátíðarinnar liggur ekki fyrir í smáatriðum en ljóst að þar verður að finna íþróttir, tónleika og listsýningar.