Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1998 Göngin lækka gjaldskrá Sorpu

Göngin lækka gjaldskrá Sorpu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Stjórn Sorpu ætlar að lækka mótttökugjöld fyrir timbur um 12% frá og með 1. júlí 1998 m.a. vegna Hvalfjarðarganga. Það er yfirlýst stefna Sorpu að láta viðskiptavini sína njóta betri rekstrarafkomu og stuðla þannig að vernd umhverfisins og aukinni endurnýtingu. Gjaldskráin lækkar úr 3,86 kr/kg í 3,40 kr/kg m/vsk. Ástæða verðlækkunarinnar er annars vegar nýr og endurbættur móttökubúnaður hjá Íslenska járnblendifélaginu hf. á Grundartanga sem bætir nýtingu timburkurlsins og hins vegar minni flutningskostnaður í nýju útboði m.a. vegna notkunar Hvalfjarðarganga.