Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1998 Lagasetning vegna ganganna

Lagasetning vegna ganganna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Alþingi samþykkti á síðustu sólarhringum vorþings breytingu á lögum um virðisaukaskatt til samræmis við þær skyldur sem íslenska ríkið hefur tekist á hendur gagnvart Speli hf. Efnislega er lagabreytingin á þá leið að skatthlutfall vegna gjalds fyrir aðgang að vegamannvirkjum verður 14% en samkvæmt gildandi lögum er skatthlutfallið 24,5%. Í samningi sem ríkið gerði við Spöl á sínum tíma var gert ráð fyrir að virðisaukaskattur á veggjald í Hvalfjarðargöngum yrði ekki hærri en 14%. Sá samningur var staðfestur með þingsályktun á árinu 1994 en síðar kom í ljós að stoð þurfti í lögum fyrir 14% virðisaukaskatti. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis flutti frumvarpið og það var samþykkt núna skömmu fyrir sumarhlé þingsins.