Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1998 Stundin nálgast - þjóðhátíð í Hvalfirði

Stundin nálgast - þjóðhátíð í Hvalfirði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Dagskrá hátíðarhalda í Hvalfirði laugardaginn 11. júlí hefur tekið á sig endanlega mynd. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, opnar göngin formlega með því að klippa á hefðbundinn borða í munnanum sunnan megin, Páll Sigurjónsson, stjórnarformaður Fossvirkis og Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, ávarpa gesti þar á vettvangi og Lúðrasveit Akraness leikur. Síðan verður ekið með heiðursgesti samkomunnar í gegnum göngin, aðallega í fólksflutningabílum, og gera má ráð fyrir að boðsgestir verði alls á fimmta hundrað. Norðan megin syngur Karlakór Reykjavíkur og Anton Ottesen, oddviti í Innri-Akraneshreppi og Halldór Blöndal, samgönguráðherra, flytja ávörp.
Að athöfn lokinni er heiðursgestum boðið í hóf um borð í Akraborginni í Akraneshöfn.

Hvalfjarðargangahlaup á vegum Reykjavíkurmaraþons hefst við suðurmunna kl. 16 og verður hlaupið norður göngin.

Hvalfjarðargöng verða svo opnuð fyrir almennri umferð kl. 19:00 að kvöldi 11. júlí og þá má búast við að mikilli umferð frá fyrstu stundu.

Fulltrúar Fossvirkis og Spalar áttu í dag, 3. júlí, fund um löggæslu og umferðareftirlit í og við Hvalfjarðargöng með fulltrúum lögreglu og björgunarsveita sem að því koma um opnunarhelgina og síðar. Lögreglan verður með mikinn viðbúnað á svæðinu 11. júlí og næstu daga, enda er búist við því að margir hugsi sér gott til glóðarinnar að kynnast þessu mikla umferðarmannvirki af eigin raun strax og færi gefst - ekki síst þegar haft er í huga að veggjald verður ekki innheimt til að byrja með. Menn úr björgunarsveitum á Akranesi og í Mosfellsbæ aðstoða við gæslu á svæðinu beggja vegna fjarðar á opnunardaginn þar til Hvalfjarðargangahlaupið er afstaðið. Gert er ráð fyrir að allir sem taka þátt í hlaupinu undir Hvalfjörð hafi skilað sér upp úr göngunum kl. 17:30 til að færi gefist til að undirbúa opnun fyrir almenna umferð.

Fram kom á fundinum með lögreglu að hugsanlegt er að sett verði einstefna til norðurs á þjóðveginn frá Hvalfjarðargöngum að norðan upp að núverandi Akranesgatnamótum og að einstefna verði á leiðinni frá Akranesi að göngunum til að koma í veg fyrir umferðarteppu við nýja hringtorgið nálægt norðurmunna.

Lögreglan hvetur vegfarendur að öðru leyti til að halda góðu bili á milli bíla í göngunum og ætlar að fylgja því eftir að 70 km hámarkshraði þar verði virtur.