Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2002 Tillaga um meiri flutningstakmarkanir í göngunum

Tillaga um meiri flutningstakmarkanir í göngunum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Fram kemur í skýrslu hópsins til ráðherra að samkvæmt nýju hættumati séu göngin örugg á mælikvarða sambærilegra mannvirkja en unnt sé að auka enn öryggið með frekari takmörkunum á flutningi hættulegra efna. Ennfremur hafi umferð um göngin aukist umtalsvert frá því núverandi takmarkanir voru settar.

Lagt er til að flutningur hættulegs farms, sem nú er bannaður um helgar, verði einnig bannaður á virkum dögum þegar umferð er mest. Hins vegar verði banni aflétt að næturlagi um helgar þegar umferð er lítil.

Gestur Guðjónsson, verkfræðingur og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í starfshópnum, skilaði séráliti og taldi óviðunandi að ólestuðum olíubílum yrði bannað að aka um göngin síðdegis á virkum dögum. Slíkt bann myndi litlu breyting um áhættu í göngunum en setja hins vegar ökumenn í óþarfa hættu með því að knýja þá til að aka fyrir Hvalfjörð í öllum veðrum. Bannið myndi auk heldur kosta 5-10 milljónir króna árlega.

Í starfshópinn voru skipuð Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismaður, sem jafnframt var formaður, Gestur Guðjónsson verkfræðingur, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins, Guðmundur Gunnarsson yfirverkfræðingur, tilnefndur af Brunamálastofnun, Hjálmar Björgvinsson aðalvarðstjóri, tilnefndur af ríkislögreglustjóra, Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri, tilnefndur af Vegagerðinni, Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri, tilnefndur af lögreglustjóranum í Reykjavík, og Víðir Kristjánsson deildarstjóri, tilnefndur af Vinnueftirlitinu. Sandra Baldvinsdóttir, lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og síðar Aagot Óskarsdóttir lögfræðingur á sama stað, voru ritarar starfshópsins.