Samgönguráðherra vongóður um að veggjald sérleyfishafa lækki
Þetta kom fram í ræðu ráðherrans á ráðstefnu Ferðamálaráðs í Stykkishólmi í dag. Hann sagði m.a.: ,,Þegar ég tók við embætti blasti við hrun þess rútukerfisins og þó að við Íslendingar séum miklir aðdáendur einkabílsins eru traustar áætlunarferðir nauðsynlegur hluti af ferðaþjónustu hvers lands. Mikil vinna hefur verið lögð í að koma þessu kerfi á fætur á ný og hafa margir lagt hönd á plóginn. Nú er staðan sú að sérleyfishöfum hefur fækkað með sameiningu fyrirtækja. Framlög til hvers aðila hafa verið hækkuð og ég treysti því að afkoma fyrirtækjanna eigi eftir að stórbatna. Liður í þeim aðgerðum er að ná þarf samningum við Spöl um lækkun á gjaldi fyrir sérleyfishafa í Hvalfjarðargöngin. Ég tel að það mál fái farsæla niðurstöðu. Í samræmi við nýja löggjöf um fólksflutninga verða sérleyfin boðin út, ekki síðar en frá og með 2005. Þó er gert ráð fyrir að bjóða austurleiðina út á næstunni í samræmi við samkomulag sem gert var við Austurleið-SBS hf. fyrr á þessu ári.?