Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2002 Níu ökumenn yfir hámarkshraða á sólarhring, mesti hraðinn 136 km á klst.!

Níu ökumenn yfir hámarkshraða á sólarhring, mesti hraðinn 136 km á klst.!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Lögreglan bókaði alls 1.371 brot vegna hraðaksturs í Hvalfjarðargöngum frá ágústbyrjun til desemberloka á árinu 2001, þ.e. rúmlega 9 brot að jafnaði á sólarhring. Þetta kemur fram í greinargerð sem forvarna- og fræðsludeild lögreglunnar í Reykjavík hefur látið eigendum Hvalfjarðarganga í té. Ráðamenn Spalar ákváðu að stuðla að öruggari umferð í göngunum með því að kaupa eftirlitsmyndavélar og afhenda þær lögreglunni 2. ágúst sl. Árangurinn lét ekki á sér standa. Margir voru vissulega hirtir fyrir of hraðan akstur og þurftu að gjalda ríkissjóði sitt af því tilefni. Ljóst er hins vegar að menn hægðu verulega á sér í göngunum og aksturslag undir Hvalfirði er því ekki jafnmikil gullnáma nú sem fyrr fyrir Geir Haarde, fjármálaráðherra, og ríkissjóð.

Í ágúst 2001 voru skráð 395 hraðakstursbrot, í september 328, alls 204 brot í október, 301 í nóvember og 143 í desember. Brotin voru með öðrum orðum 13,6 á sólarhring að jafnaði í ágúst en aðeins 4,6 að jafnaði í desember.

Meðalhraði hinna brotlegu var svipaður alla fimm mánuðina sem greinargerð lögreglunnar tekur til, 88-90 km á klukkustund. Eftirtektarvert er hins vegar að efri mörk hraðans fóru greinilega lækkandi þegar leið á árið. Í ágúst, september og október mældust þeir sem hraðast fóru um göngin á yfir 110 km hraða. Sá sem á þann vafasama heiður að hafa ekið hraðast ók á 136 km hraða í október, þ.e. á tæplega tvöföldum hámarkshraða í Hvalfjarðargöngum. Enginn mældist hins vegar yfir 110 km hraða í nóvember og desember.

Hraðakstursmenn í Hvalfjarðargöngum gangast greinilega við brotum sínum í verki og borga sektirnar sem á þá eru lagðar. Um áramótin hafði þannig sekt fyrir 81% brota í ágúst verið greidd, sekt fyrir 71% brota í september, 72% í október 58% í nóvember og 43% í desember.