Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2003 Tólf af hundraði með fellihýsi í eftirdragi

Tólf af hundraði með fellihýsi í eftirdragi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Engin þessara bifreiða var með viðbótarspegla, öryggisbúnað sem skýrt er kveðið á um í lögum. Þetta kom fram í könnun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu. Niðurstöðurnar staðfesta ótvírætt hve fellihýsin eru orðin útbreidd fyrirbæri í samfélaginu en að sama skapi vekur ákveðinn ugg hve hirðulausir eigendur hýsanna og ökumenn, sem draga þau um þjóðvegina, eru um að uppfylla lagaskilyrði um öryggisbúnað ökutækja sinna. Í annan stað er það því miður staðreynd að fellihýsin eru í mörgum tilvikum of þung fyrir bílinn sem þau dregur.