Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2003 Ókeypis í göngin á afmælisdaginn!

Ókeypis í göngin á afmælisdaginn!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Af því tilefni ákvað stjórn Spalar ehf., sem á og rekur göngin, að bjóða vegfarendum að aka ókeypis undir Hvalfjörð frá kl. 7:00 að morgni 11. júlí til kl. 7:00 að morgni 12. júlí 2003. Ekkert veggjald verður sem sagt innheimt á afmælisdaginn en vakt og öryggisgæslu samt sinnt með venjulegum hætti í gjaldskýli. Ætla má að verðmæti gjafar afmælisbarnsins, til þeirra vegfarenda sem hennar fá notið, verði á bilinu 7-10 milljónir króna.

Gera má ráð fyrir mikilli umferð enda ber afmælið upp á föstudag og sitthvað verður um að vera víða, til dæmis á Akranesi þar sem margir viðburðir eru á dagskrá samtímis á þessum tíma: Írskir dagar, Lottómót í knattspyrnu og golfmót.

Alls fóru 11.800 bílar um Hvalfjarðargöng á fyrsta sólarhringnum eftir að þau voru tekin í notkun í júlí 1998 og þetta umferðarmet hefur staðið óhaggað síðan þá.
Mesta umferð í göngunum frá því byrjað var að innheimta veggjald, 20. júlí 1998, var hins vegar föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi 2001, alls 9.100 bílar á sólarhring. Til samanburðar má geta þess að á sunnudögum núna í júnímánuði 2003 fóru að jafnaði um og yfir 6.000 bílar um göngin á einum sólarhring.

Tekjur af hverju ökutæki hafa lækkað mikið að raungildi
Gert var ráð fyrir því á hönnunar- og undirbúningstíma Hvalfjarðarganga að um þau færu allt að 1.500 bílar á sólarhring en umferðarþunginn varð strax mun meiri. Á fyrsta heila árinu fóru þannig 2.500 bílar að meðaltali um göngin og á síðasta ári, 2002, var meðalumferðin orðin um 3.500 bílar á sólarhring eða alls tæplega 1,3 milljónir bíla á árinu öllu.

Tekjur af umferðinni urðu mun meiri en búist var við í upphafi og í því ljósi þótti fært að lækka veggjaldið í ágúst 1999, í upphafi annars rekstrarárs ganganna. Það hlýtur að teljast athyglisverð staðreynd að veggjaldið hefur frá upphafi lækkað verulega miðað við verðlag og þess njóta auðvitað landsmenn, viðskiptavinir Spalar.

  • Nettótekjur Spalar af hverjum bíl (óháð stærð) hafa lækkað um 38% á rekstrartíma ganganna, frá júlí 1998 til febrúar 2003. 
    Nettótekjur Spalar af hverjum bíl voru 869 krónur fyrst eftir að göngin voru tekin í gagnið en 661 króna í febrúar 2003, séu bornar saman tölur á verðlagi í febrúar 2003.
  • Veggjald í einstökum gjaldflokkum hefur lækkað að raungildi um 18-40% frá því göngin voru opnuð, sé miðað við breytingar á neysluverðsvísitölu á sama tímabili.
  • Samanburðar áranna 1999 og 2002 í rekstri Hvalfjarðarganga leiðir eftirfarandi í ljós:
Bílum á ferð um göngin fjölgaði um 25,4%, úr 2.824 í 3.540 bíla á sólarhring að jafnaði.
Tekjur Spalar af umferðinni drógust hins vegar saman um 3,7% á sama tímabili, reiknað á verðlagi ársins 1999.

Hafa ber í huga að áskrifendur ferða eru hlutfallslega miklu fleiri en gert var ráð fyrir við undirbúning Hvalfjarðarganga og raunar mun fleiri en þekkist nokkurs staðar annars staðar í sambærilegum rekstri í veröldinni miðað við fjölda íbúa og ökutækja. Þar með eru líka rauntekjur Spalar af umferðinni minni en ætla mátti á sínum tíma þegar metin var reynsla af veggjöldum í öðrum löndum.

Spölur hefur afgreitt 15.000 veglykla til áskrifenda á fimm árum, margfalt fleiri en erlendir ráðgjafar félagsins reiknuðu með við undirbúning ganganna. Um 70% viðskiptavina nýta sér afsláttarkjör af einhverju tagi (fasta áskrift ferða eða afsláttarkort).