Fréttir 2003

Print

Reykur án elds ekki til í drögum að viðbúnaðaráætlun

Úr því verður snarlega bætt í ljósi reynslunnar frá því 6. mars þegar mikill reykur gaus upp eftir að olíu sprautaðist yfir vél í flutningabíl í Hvalfjarðargöngum án þess að kviknaði í. Þetta kom fram á sérstökum fundi vinnuhóps um viðbúnaðaráætlun ganganna sem boðað var til á Akranesi í dag til að fjalla sérstaklega um atvikið 6. mars.

Vinnuhópurinn telur að nýja viðbúnaðaráætlunin hafi að mörgu leyti staðist próf reynslunnar þegar á hana reyndi í fyrsta sinn. Einkum voru menn ánægðir með hve skjótt og vel tókst að stöðva umferð beggja vegna Hvalfjarðar eftir að boð bárust um reyk og hugsanlegan eld í göngunum.

Á fundi vinnuhópsins var rætt um hnökra í fjarskiptum, sem að miklu leyti má rekja til þess að tvenns konar fjarskiptakerfi eru notuð samtímis. Slíkir hnökrar ættu að heyra sögunni til þegar Tetra-fjarskiptabúnaður verður kominn í gagnið í sumar.