Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2003 Reykjarmökkur vegna olíuleka í flutningabíl

Reykjarmökkur vegna olíuleka í flutningabíl

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Óttast var í fyrstu að kviknað hefði í bílnum en í ljós kom að reykurinn stafaði af olíu sem lak af spíss niður í sveifarhús vélarinnar. Reykurinn var afar þykkur en öllum vegfarendum í göngunum tókst að komast út vandræðalaust og ekkert amaði að bílstjóranum frá Flytjanda og farþega hans sem sátu í bílnum. Slökkvilið Akraness fór niður að norðan en slökkviliðsmenn að sunnan sneru við og hörfuðu út aftur að sunnan verðu undan reyknum sem barst suður úr göngunum.