Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2003 Ný viðbúnaðaráætlun fyrir Hvalfjarðargöng vel á veg komin

Ný viðbúnaðaráætlun fyrir Hvalfjarðargöng vel á veg komin

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Stefnt er að því að ljúka vinnu við viðbúnaðaráætlun fyrir Hvalfjarðargöng snemma á nýju ári. Drög að áætluninni voru kynnt og rædd í stjórn Spalar í dag.

Nýja viðbúnaðaráætlunin er annars vegar lýsing á öryggisbúnaði Hvalfjarðarganga og hlutverkaskiptingu þeirra sem að málum koma en hins vegar einskonar leiðabók um hver gerir hvað á neyðarstundu. Viðbúnaðaráætlun var gefin út um leið og göngin voru tekin í notkun sumarið 1998 og hún hefur allar götur síðan þá verið grunnur öryggismálastefnu Spalar fyrir göngin. Ákveðið var strax í upphafi að áætlunin skyldi endurskoðuð í ljósi reynslu af rekstri ganganna og það er einmitt sú endurskoðun sem skilaði drögum að nýrri viðbúnaðaráætlun inn á stjórnarfund Spalar í dag.

Vinna við nýju viðbúnaðaráætlunina hófst á árinu 2002 í umfangsmiklu samstarfi fulltrúa Brunamálastofnunar, slökkviliða höfuðborgarsvæðis og Akraness, lögreglunnar í Reykjavík, embættis ríkislögreglustjóra, Vegagerðar ríkisins og Spalar. Fleiri komu að málinu þegar á leið, m.a. Neyðarlínan, Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, landlæknisembættið, Landspítalinn-háskólasjúkrahús, sjúkrahús og heilsugæslustöðin á Akranesi, Slysavarnafélagið Landsbjörg, björgunarsveitirnar og Landhelgisgæslan.

Gert er ráð fyrir að kynna nýju viðbúnaðaráætlunina í vetur á fundum með slökkviliðsmönnum, lögreglumönnum, starfsmönnum Spalar og fleirum sem málið varðar. Einnig er á dagskrá að efna til almannavarnaæfingar í og við Hvalfjarðargöng þar sem verður látið reyna á viðbúnaðarkerfið í heild sinni áður en áætlunin verður endanlega samþykkt og gefin út.


Stjórnarfundur Spalar í dag. Frá vinstri: Marínó Tryggvason, aðstoðarframkvæmdastjóri
og öryggismálafulltrúi, Stefán Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri, Gísli Gíslason,
formaður stjórnar, Gylfi Þórðarson, Ingimundur Birnir og Gunnar Gunnarsson.


Frá vinstri: Ingimundur Birnir, Gunnar Gunnarsson, Helgi Þorsteinsson og Páll S. Brynjarsson.