Aðrir stjórnarmenn voru endurkjörnir:
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, formaður.
Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri.
Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar.
Helgi Þorsteinsson, sveitarstjórnarmaður í Skilmannahreppi.
Varamaður stjórnar: Páll S. Brynjarsson, bæjarstjóri í Borgarbyggð.
Hlutafélagið Spölur var stofnað 25. janúar 1991. Hlutafé er samtals 86 milljónir króna og hluthafar voru alls 44 í lok rekstarársins 2002-2003. Þeir sem áttu stærri eignarhluta en 10%:
- Grundartangahöfn: 23,5%
- Sementsverksmiðjan hf.: 17,6%
- Íslenska járnblendifélagið hf.: 14,7%
- Skilmannahreppur: 11,6%
- Vegagerð ríkisins: 11,6%

Nýkjörin stjórn Spalar og framkvæmdastjórinn. Frá vinstri: Stefán Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri, Ingimundur Birnir, Gísli Gíslason, Gunnar Gunnarsson, Helgi Þorsteinsson og Gylfi Þórðarson.

Fráfarandi stjórn Spalar. Frá vinstri: Gylfi Þórðarson, Gunnar Gunnarsson, Gísli Gíslason, Stefán Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri, Stefán Ólafsson og Helgi Þorsteinsson.



